Gagnrýnislausar fullyrðingar svokallaðra „Hagsmunasamtaka“ heimilanna!

Það er algjörlega óþolandi hvað fjölmiðlar lepja oft upp vitleysuna í þessum svokölluðu „Hagsmunasamtökum“ heimilanna, sem og öðrum „Hagsmunasamtökum“. Fyrir hvaða hagsmuni eru þessi samtök að berjast? Hvaða hagur er það að fara í greiðsluverkfall með öllum þeim vanskilakostnaði sem því fylgir? Hvaða hag af almennum afskriftum af lánum hafa heimili í leiguhúsnæði sem ná varla endum saman þrátt fyrir að skulda ekki neitt?

Nú halda þessi svokölluðu „hagsmunasamtök“ því fram að 63% lána séu í vanskilum. Ég leyfi mér að stórlega efa það. Vel má vera að 63% lána séu „Non-Preforming Loans“ en er rétt að flokka þau öll sem vanskil? Ég held að lán í frystingu séu inni í þessum flokki. Lán í frystingu er EKKI í vanskilum. Svo mikið er víst. En ég er nokkuð viss um að „Hagsmunasamtök“ heimilanna flokki fryst lán sér í hag. Þessi samtök hafa hrópað „HEIMSENDIR“ alveg frá hruni.


mbl.is HH: 37% lána í skilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband